3.10.2009 | 15:20
Það vantar ekki skýringarnar
Já er það ekki magnað þegar vakin er athygli á hlutum eins og þessum þá þarf ráðherrann að bjarga eigin rassi og segist ekkert vita, og það er sagt klúður hjá STJÓRNKERFINU, Kaupi ekki slíka skýringu. Katrín er ábyrðarmaður þessa stjórnkerfis sem ráðherra. Hafi hún ekki vitað hvað var í þeim fjárlögum sem lögð er fram þá á hún í hvelli að finna sér starf sem hún ræður við og hefur yfir sýn yfir. Hún er reyndar ekki ein um þetta - meðráðherrar hennar eru flestir sama marki brendir. Ögmundur viðurkenndi þó eigin vanmátt með því að segja af sér þó skýringuna á afsögninni væri haglega fyrirkomið. Nema lýðræðið sé ekki í hávegum haft og ef svo er ætti þessi stjórn að fara í heilu lagi og það strax.
Ráðherra ókunnugt um skatta á þungaiðnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.9.2009 | 21:21
AGS - Frábær hjálparhella
Um 14 þúsund gætu misst vinnuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2009 | 20:56
Já byrjum bullið á ný
Er búið að tryggja ný lög um banka og fjármálastofnanir svo leikurinn verði ekki endurtekinn?
Íslensku eigendurnir stóðu sig ekki, nú er það eitthvað flottara að erlendir aðilar eignist bankann með það eitt fyrir augum að ná eins miklu fjármagni út úr þeim og kostur er. - Við verðum líka að gera okkur það ljóst að það fjármagn er BARA á leið út úr landinu.
300.000 manna smátownið Ísland skiptir erlenda kröfuhafa akkúrat engu máli. Það eru dollararnir sem verða taldir í þessum viðskiptum. Já það er bara flott hjá Steingrími og Co. að gera c.a. 30.000 fjölskyldur á Íslandi gjaldþrota og rétta síðan bankana erlendum aðilum án þess að okkur komi það nokkuð við. Án þess að virk lög um banka og fjármálastofnanir sjái dagsljósið. Síðan mun væntanlega völdum gæðingum afhent fyrirtæki landsins svona eitt og eitt. Gjaldþrota hyskinu kemur þetta varla nokkuð við, þau halda bara áfram að borga brúsann. Þessum aðilum er nefnilega nokk sama um einstakar fjölskyldur og koma aldrei til með að hliðra nokkuð til í greiðsluferli þeirra t.d. vegna fyrri íbúðarkaupa.
Vongóður á vilja kröfuhafanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.8.2009 | 00:57
Hvar er nú Forseti vor
Sú var tíðin að Forseti vor Ólafur Ragnar Grímsson fór mikinn í landkynningu og hélt ótal ræður m.a. um ágæti Íslensku kaupahéðnanna. Eftir fall bankanna hefur varla af honum frést? Það væri nú fyrst sem þetta embætti sem í mínum huga á að vera einskonar sameiningartákn þjóðarinnar ætti að láta í sér heyra, hvetja okkur ohér heima g tala máli okkar á erlendum vettvangi. Ég auglýsi hér með eftir Forseta landsins í því hlutverki sem mér finnst hann ætti nú að fara að sinna að fullum þunga.
Ég spyr HVAR er Forseti VOR?
Átak til kynningar á málstað Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.6.2009 | 20:38
Það þurfti útlending til
Það sýnir vel hve fjölskyldu,- og ættartengslaspillingin er mögnuð hér að það þurfti útlenda manneskju til að heimta breytingar til að menn föttuðu það sem löngu var vitað um sérlegan saksóknara Valtýr Sigurðsson. Menn hér bara ifta öxlum og horfa í hina áttina, í versta falli bölva í hljóð því að eiga ekki velsett skyldmenni í kerfinu.
Nú erum við með tvö dæmi á borðinu um þetta - Hitt er bæjarstjórinn í Kópavogi. Ég er helvíti hræddur um að fyrirtækið sem þar um ræðir hefði ekki fengið þessi verkefni nema AÐEINS vegna ættartengslanna. Undirmenn henda ekki dóttir bæjarstjórans svo glatt frá borði nema þeir séu æstir í atvinnuleysisbæturnar. Menn hafa nefnilega fokið fyrir minni sakir bæði í Kópavogi sem annarstaðar.
Björn verður ríkissaksóknari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.5.2009 | 09:51
Já þeir eru bara rétt að byrja
Bensínlítrinn í 181 krónu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.3.2009 | 14:22
Nýir tímar staðnað slagorð
Vinstristjórn lífsnauðsyn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2009 | 21:27
DVD - Þættir MEÐ Íslenskum texta - JÁ TAKK
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2009 | 01:55
Hvers vandamál er þetta
Eigi Björn Jr. við það vandamál að stríða að nota eða hafa notað eiturlyf er það hans vandamál ekki mitt, Fyrir mér er Björn Jr jafngóður söngvari, jafngóður textasmiður og ég óska honum ávalt velfarnaðar í lífinu líkt og öllum öðrum. Fyrir mér kemur þetta bara Idolinu ekkert við. Ætti Stöð 2 t.d. að hætta að sýna allar bíómyndir þar sem fyrir kemur leikari sem uppvís er að eiturlyfjaneyslu? Hvernig væri að hægja á fordómunum. Hér er ég þó ekki að réttlæta neyslu eða viðskipti með fíkniefni. Þau eru og verða ávalt eitur. Ég er svona að velta því fyrir mér hve margir fái sér nú einn tvo bjóra segi svo að þeir séu á móti vímuefnum.
Við Björn Jr. segi ég Björn ég treysti þér til að fara þær leiðir í lífinu sem skapa þér vellíðan, öryggi og velgengni. óvímaðir eru menn að öllu jöfnu og ávalt betur hæfir til góðra verka.
Björn Jörundur viðurkennir mistök | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.2.2009 | 10:00
Íslensku tónlistarverðlaunin
Já og ja hér, Íslensk tónlistarverðlaun framundan. Þessi hátíð sem ætti að geta vaxið og dafnað í árferði eins og nú þar sem listir vaxa yfirleitt þegar eitthvað er að gerast í samfélagi manna og verður listamönnum uppspretta, fer hina leiðina. Jahá! Verðlaunum fækkar líka svo ummunar, Og hátíðarhaldið skríður í fátækt inn til sjónvarpsins, Afhverju var ekki bara biðlað til Fjölskylduhjálparinnar eða Rauðakrossins. VÁ!!!! Væri ekki bara ráð að hafa tvenn verðlaun ein fyrir Popp og önnur fyrir Klassíkina já og kannski þriðju fyrir Jazzinn og senda verðlaunin með pósti heim til vinningshafana.
Ég hef sjálfur verið þess aðnjótandi að vera boðin í tvö, þrjú skipti á þessa hátíð og hafði bara nokkuð gaman af því. En svo var maður víst ekki inni lengur og eins og svo ótal margir sem komið hafa að tónlistargeiranum tímabundið og er alvani í þessum bransa, það er maður er gleymdur. Sat því heima og horfði á hálf-fyllt Borgarleikhús í eitt eða tvö skipti. Nú treysta menn sér sem sagt ekki til að halda þessa hátíð með nokkurri sæmd. Breyta henni í sjónvarpsþátt. - Í mínum huga - Sorry - RÆFILDÓMUR.
Nema hér eigi peningasíkin sinn þátt í dæminu - Menn greiða fyrir að skila inn efni og fá tilnefningu - Sjónvarpið greiðir fyrir útsendingarréttinn, - ÆJI - Sleppum þessu frekar en gera þetta hallærislegt.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)