Eins og Ríkisstjórn efnahagsmála í viku

Ég var mættur á réttum tíma til sérfræðingsins út af brjósklosinu á endurkomudeildina á Borgarspítalanum í morgun. Talsverður fjöldi fólks beið þarna á ganginum eins og venja er á íslenskum læknabiðstofum. Ég tilkynnti ungri stúlku í móttökunni komu mína og var rétt sestur með eitthvert Séð og heyrt þegar hún kallaði mig inn. 99% þeirra sem þarna voru að bíða litu upp og horfðu á mig með "Þú helvítið þitt, í klíkunni. Færð forgang hér meðan ég er látinn bíða" svipnum. Mér leið því frekar eins og ég hafi framið lögbrot en sjúklingi þegar ég fór inn fyrir. Þeir sem komið hafa þarna vita að þar tekur við önnur biðstofa og þar endurtók þessi leikur sig, nema kannski hálfu grófar í þetta skiptið, nú var ég rétt búinn að setja kaffi í bolla þegar læknirinn sjálfur kom fram á gang og kallaði: "Bárður?", Ég leit upp og hann bætti þá gráu oní svart með "sæll, komdu". Rétt eins og við værum gamlir kunningjar og ég hugsaði: Ja hver andskoti þarf ég að biðja alla hérna afsökunar þegar ég labba út. Því augngotur þeirra sem biðu voru hálfu illilegri nú en á fremri biðstofunni. Svo illilegar að ég var að hugsa um að segja við mann sem sat beint á móti mér "Þetta er ekki mér að kenna - Ég þekki hann ekkert"

Eftir að læknirinn hafði skoðað mig í bak og fyrir, kannað öll þau taugaviðbrögð sem hægt er í fótum eins manns kom hinn ægilegi úrskurður - Hvíld í viku! Ha hvíld í viku endurtók ég. Já alger hvíld, legstu í leti í viku. Ekki gera neitt Bara leti í viku.

Hvað varð um Vinnan göfgar manninn, bætir mann og styrkir mann. Þetta hefði ekki þótt heillaráð fyrir öld eða svo. Hann afi minn hefði sagt þetta vott um ræfildóm. En nú eru nýir og breyttir tímar. Ég á sem sagt að haga mér eins og ríkisstjórnin í efnahagsmálum þjóðarinnar EKKI AÐ GERA NEITT. Nema ég hef bara viku til þess. (Ríkisstjórnin heilt kjörtímabil). Ég er nú ekkert viss um að mér komi til með að ganga eins vel og ríkisstjórninni. Ekki viss um að ég haldi út þessa viku. Ég steingleymdi líka að fá þetta skriflegt hjá sérfræðingnum til að sýna það konunni. Já einmitt látið ykkur bara detta í hug að hún hafi trúað mér þegar ég kom heim með tíðindin. Leti og ómennska í heila viku. EKKI GERA NEITT Í HEILA VIKU. Nú ætla ég að hringja í Geir forsætisráðherra og fá ráðleggingar hvernig maður fer að því að gera ekkert í heila viku. Hvort hann komist upp með það sama heima og í vinnunni í efnahagsmálunum. Ef svo ég þá fé ég konuna mína til að tala við konuna hans um hvernig þola má mann sem gerir ekkert í heila viku. Þetta er að skella á HEIL VIKA LETI og strákar enga öfund.


Ballerína dagsins

Menn stíga dansa á flestum stigum þjóðlífsins þessa dagana. Hvort sem það er í viðskiptalífinu eða í pólitískum darraðardansi. T.d. hafa Ingibjörg og Geir varið að stíga dansa auðmanna um borð í einkaþotum undanfarið. Einhverjir sveitastjórnarmenn við drauma sína um olíuhreinsunarstöð og svo mætti lengi telja.

Engin kemst þó í hálfkvist við glæsileika þeirra sem tóku þátt í lokasýningu Ballettskóla Eddu Scheving í Borgarleikhúsinu í gær. Yngri dóttir mín Fríða Valdís sem ég gjarnan kalla "Lubba stubb" var þarna að sýna í fyrsta sinn. Spennan var mikil enda eldri systirin búin að sýna þarna tvö ár.

Frida-ValdisPabbi hennar var ekki alveg með nennuna að mæta eftir að hafa verið vakandi í nær sólarhring. En varð náttúrlega að láta sig hafa það. Og mikið rosalega vildi ég eiga mynd af þeirri gleði sem skein úr augum hennar í gærkveldi þegar hún var lögst á koddann og ég var að bjóða henni góða nótt og sagði henni að mér hefði þótt hún langflottasta ballerínan á sviðinu. Hún hefi verið æðisleg. Þessi stóru augu hennar hreinlega geisluðu af þakklæti og gleði eitt andartak og stoltið var í hæstu hæðum.  Það eru þessi augnablik þegar maður sér gleðina og stoltið í augum barna sinna sem verða hátindar þess að vera foreldri.
Hún tók svo utan um hálsinn á pabba sínum og sagði við mig um leið "Já, Pabbi, Ég gerði líka alveg eins vel og ég gat, ég vandaði mig svakalega mikið" og svo var unga balletdama sofnuð.

Mikið væri það nú gaman ef pólitíkusarnir og viðskiptajöfrarnir, spákaupmennirnir og hinir kaupmennirnir gætu í lok dagsins í dag sagt eins og dóttir mín í gærkvöldi "Ég gerði alveg eins vel og ég gat, Ég vandaði mig svakalega mikið" Gleði og stolt skyni úr augum þeirra og við hin fylltumst stolti af verkum þeirra. En líklegra er þó að þeir stari aðeins í eigin buddu og hvísla milli samanbitinna tanna sinna MEIRA MEIRA MEIRA.


Lítið ljóð til vinar

Líf þitt er lánafrumskógur
Ljónið heitir Glitnir
og gleypir þig.

Nú ertu bara kennitala
merkt með rauðu.


Mynd af markaðsfræðinni fyrir 365

Já lífið er skrítið. Í dag hringdi Fréttablaðið í mig og óskaði eftir því við mig að ég tæki burt af Bubbi.is mynd sem það ætti. Já, Ég brást strax við og gerði það. Ég fór svo að íhuga þetta betur og eftir því sem ég hugsaði meira um þetta fannst mér þessi ósk blaðsins undarlegri með hverri mínútunni.

Við skulum nefnilega gera okkur grein fyrir að fáir miðlar hafa undanfarið fjallað eins mikið um BM og Fréttablaðið. Af hverju ætli það sé. Gæti verið að þar á milli séu einhverjar tengingar? ég skrifaði inn á spjallið á bubbi.is og læt nú þau skrif einnig fljóta hér inn en þetta er íhugun undir fyrirsögninni Bubbi, 365 og markaðsfræðin:

Ég er þessa dagana að velta fyrir mér markaðsfræðinni.
Skemmtilegt fag.
Eitthvað sem 365 mætti alveg fara að gera.
365 já, Æji, Bubbi Morthens er eitthvað tengdur þessu fyrirtæki, samningsbundinn Senu.
sem er víst eitt af fyrirtækjunum innana 365 (held ég), kannski er það vitleysa í mér.
Þessi fyrirtæki hér á skerinu eru alltaf að skipta um eigendur eða eignarhaldsfélög.
Annað fyrirtæki innan sömu samsteypu er Fréttablaðið.
Fínt blað, já bara déskolli gott blað.
Það er blað sem biður menn um að fá að taka myndir
Oftar ef viðfangsefnið er tengt 365 á einn eða annan hátt
Segir svo af því fréttir með myndinni sem það tók,
Markaðsfræðin hjá  365. Já bara flott, nokkuð gott.
Þegar viðkomandi myndefni ætlar svo að nota myndina af sér.
Ja t.d. á eigin heimasíðu og auglýsa verk 365 þá kemur smá bobb í bátinn
Því þá má ekki nota myndina. - Blaðið á myndina. Þú ert bara á henni.
Þá hafa markaðsfræðin og höfundarréttarlögin vistarskipti.

Já, skrítin fræði þessi markaðafærði.
Sumir kunna svolítið í henni, aðrir lítið lesnir
Einhverjir kannski gleymt að lesa heima í markaðsfræðibókunum sínum.
Líklega lesið yfir sig í höfundarréttarlögunum.
Það er sorglegt.

Mér finnst höfundaréttalögin mjög fín líka.
Hef lesið svolítið í þeim einnig
Bara nokkuð skemmtileg. Svolítið talað um hvað ekki má.
En það er allt í lagi.
Myndi samt aldrei taka þau svo hátíðlega að ef ég væri ljósmyndari og tæki mynd af Jón Jónssyni að ég myndi banna honum að birta myndina í auglýsingu um ljósmyndarann.
Það væri ekki góð markaðsfræði.

En líklega er höfundarrétturinn í meiri metum hjá ljósmyndadeild Fréttablaðsins.
Skiljanlega - menn verða að passa sitt.
Hvar ætli markaðsfræðin sé hjá 365? - Veit það ekki,
En hjá Fréttablaðinu? - veit það ekki heldur
Kannski týnst við einhverjar eignahaldsbreytingarnar.
Það er ekki gott. Aldrei gott að týna hlutunum.
En gott að vita að höfundarréttarlögunum há Ljósmyndadeildinni.
Og það er líka gott þegar fyrirtæki hafa fundið sér leið til ljóssins.
Ákveðið í að passa sitt.
Jafnvel fyrir sjálfu sér.
En ætli það sé gott að vera blað á markaði og búinn að týna, nú eða gleyma markaðsfræðinni -
Já það er dapurt!

Á morgun ætla ég að lesa annan kafla í markaðsfræði bókinni minni fyrir börn á öllum aldri
Þegar ég er búin með bókina ætla ég að senda 365 hana sem fyrsta innlegg í endurreisn markaðsdeildarinnar.

Æji ég verð að bæta aðeins við þetta.
Bara af því að 365 gleymir sér stundum
Allavega svolítið í höfundardeildinni sinni
Hún er sennilega geymd hjá Fréttablaðinu.
Ég skrifaði einu sinni helling af umsögnum um tónlistarmenn
Meðal annars fyrir tónlist.is
Það var allt í lagi.
Fékk borgað fyrir það
Það er víst rétt eins og Sena, Fréttablaðið og samningur Bubba
- hluti af samsteypunni 365.

Þeir voru nú samt ekkert að hafa fyrir því hjá 365 eða tónlist.is að láta mig sem höfund vita að RÚV væri með þátt um Villa Vill á Rás 2.
Og því síður að skrifin mín lesin nánast orðrétt upp sem einhver þáttagerð hjá RÚV. 
Hannes Hólmsteinn fékk dóm fyrir eitthvað svipað vegna bókar bókar um nóbelskáldið
Maður þarf kannski að vera búinn að fá slýk verðlaun til að vera marktækur.


Ætli 365 sé enn á markaði?
Ef ekki gætu þeir kannski eytt smá tíma í að segja upp siðareglur
Já bara svona litlar og nettar fyrir fyrirtæki samsteypunnar
Svona reglur er varða höfundarréttalögin, Hafa aðgang að þeim hjá ljósmyndadeildinni
Fljótlegra en leita að týndu markaðsfræðideildinni
Ég væri alveg til í að hjálpa þeim við það. Mér líkar nefnilega vel við 365.
Ég er hrifin af því að til sé sterkt og stöndugt fyrirtæki í þessum geira.
Fyrirtæki sem hefur metnað og passar sitt - Allt nema markaðsfræðibækurnar.
Kannski maður geti fengið vinnu hjá 365 við að finna týndu markaðsdeildina
efla samskipti milli ólíkra deilda samsteypunnar. Hver veit.


Langar svolítið

smoking2Ég hef rætt það svona 100 sinnum við konuna hvort maður ætti ekki að fara að huga að því að hætta að reykja. Einn daginn er maður harðákveðinn í að láta BRÁÐUM til skara skríða, en er svo búinn að steingleyma því loforði næsta dag. Líklega verður að telja mig aumingjagóðan mann og í mínu lífi er það aumingja ég sem er svona góður við sjálfan mig (eða vondur, eftir því hvernig á það er litið) að ég vil ekki mig auman sjá. Svo rekst maður á svona mynd eins og þessa á netinu og þá vaknar upp þessi HÆTTA að reykja spurning. Og maður sér að það liggur kannski ekkert svo mikið á. Ætli maður bíði ekki aðeins enda ekki kominn í þessa stærð enn. - Sorry farinn á svalirnar að svæla eina. Þið sem sitjið og lesið þetta eigið Góðan Dag! Shit er ég farinn að nota þessa setningu sem truflaði mig á Föstudaginn hvað mest...LoL

Kettir í stuði

Dýrin geta verið ótrúlega fyndin Kettir þar með taldir.

Bandið hans Bubba?

Jæja það er komið að því. Ég vissi sem væri að það liði ekki langur tími þar til ég bloggaði eitthvað um Bubba Morthens. Enda kannski ekkert skrítið þar sem ég hef annast heimasíðu fyrir hann. Ég ætla þó ekki að tala um hann í eigin persónu heldur sjónvarpsþáttinn sem hann hefur stýrt undanfarin föstudagskvöld. Já það styttist í úrslit í sjónvarpsþættinum á Bandinu hans Bubba. Það er að koma á daginn sem manni grunaði að þessi þáttur er að verða æ líkari Rockstar Súpernova þættinum sem Magni tók þátt í á sínum tíma. Ekki bara með uppsetninguna, ekki bara að manni grunar það orðið helst sem vitað var í ameríska þættinum það er hver bæri sigur úr bítum, þá að sveitinni var aldrei ætlað að lifa lengur en rétt yfir þættina. Það er ekkert skrýtið, Meðlimir hennar allir stór nöfn í íslenskri rokktónlist og í starfandi hljómsveitum og sumir í fleiri en einni. Ástæðan er að ég rakst á frétt á visir.is í morgun þar sem talað er við Pál Eyjólfsson umboðsmann. sem segir m.a.
„Það hefur aldrei staðið til að bandið hans Bubbi yrði eitthvað sveitaballaband, það er mikill misskilningur. Við skoðum þessi mál þegar sigurvegarinn hefur verið krýndur,"

Og síðar í fréttinni kemur „Að sjálfsögðu mun bandið koma fram með sigurvegaranum í einhver skipti en hvort það verði eitt, tvö eða fleiri á eftir að ræða um enda sigurvegarinn ekki kominn í ljós,"

Held að þeir sem horft hafa á þessa þætti viti svo sem alveg hver kemur til með að vinna þá. Allt annað kæmi á óvart og eitthvað mikið að ef sú verður ekki raunin.

Það fyndna í málinu er að aumingja sigurvegarinn sem búinn er að taka þátt í þessari keppni Föstudag eftir föstudag, og eflaust leggja vikuna alla undir til að hljóta stöðuna "Söngvarinn í bandinu hans Bubba" fær svo ekki þá stöðu þar sem bandið kemur ekki til með að starfa neitt að ráði að lokinni þáttagerð. Spurningin er hvor ekki hefði átt að sleppa þessu loforði strax um stöðu í bandinu hans Bubba þar sem vitað var að konseftið gekk ekki. Menn væru þá bara að keppa um 3 milljónir og plötusamning. En það er ekkert má orðið að gefa út plötu hér á landi. Þá er bara eftir að keppa um 3. milljónir; en peningaspil eru bönnuð á íslandi. Eða er munum á því að syngja í keppni við annan mann um 3. milljónir en halda á fimm spilum og keppa þannig við annan mann um 3. milljónir? spyr sá sem ekki veit.


Hún á afmæli í dag...

Svona til að upplýsa ykkur og í beinu framhaldi af síðustu nótt þá gekk mikið betur í nótt. Hélt út til að verða sjö. Kom þá heim og eftir einn öl sofnaði ég eins og engill.....

AfmæisbarnidEn vaknaði með hausverk og allt á fullu hjá konunni og tengdó við að undirbúa 7 ára afmæli dótturinnar. Já Edda Sólveig er 7. ára og það telst víst ákaflega merkilegur afmælisdagur. Því ég átti spjall við dótturina um daginn vegna afmælisdagsins og þegar hún hafði skrifað upp þá sem áttu að koma í veisluna og mér fannst eitthvað fáir á gestalistanum t.d. bara tvær stelpur úr skólanum, sagði hún sjö ára afmæli vera svo merkilegt að hún ætlaði bara að bjóða þeim sem henni þætti vænt um og væru líka skemmtilegir. Ég sagði henni að þá fengi hún bara færri afmælisgjafir. - Svarið var að það gerði ekkert til hana vantaði ekkert. Hún ætti allt sem henni langaði í. Hún ætlaði bara að fá skemmtilegt fólk í afmælið. Leiðinlegt fólk kæmi örugglega ekkert með flott dót. Það væri betra að eiga skemmtilegan afmælisdag en ljótt dót.

Ég er alveg 100% sammála dótturinni með þetta. Verð því að drífa mig fram og reyna að vera svolítið skemmtilegur svo mér verði ekki vísað úr veislunni. Nema maður hafi bara komist inn á væntumþykjunni, hver veit, tel mig alla veganna vera í klíkunni.

EDDA SÓLVEIG TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN frá PABBA


Góða kvöldið HVAÐ!

TaxiÞessi helgi er ekki að gera sig í mínu lífi. Ofan á brjósklos mitt sem ég kæri mig þó ekkert um að eiga virðist ég kominn með einhverja andskotans kvefbest. Líklega ástargjöf frá yngri dóttir minni sem er búin að liggja í nærri viku, en er orðin ofurhress. Var orðin svo að farast af brjósklosi síðustu nótt að ég hunskaðist heim um 3 leitið (á miðri vakt). Það er í mínum huga engum greiði gerður með að hanga úti í leigubíl þegar skapið er orðið þannig að þegar farþegi bíður góða kvöldið hummar maður ef ekki bara kvæsir til baka á viðkomandi Já Góða kvöldið, en  finnst sjálfum kvöldið ömurlegt. Góða kvöldið HVAÐ! Hvað í helv... er svona gott við þetta kvöld þegar maður er að farast í bakinu og kálfinn er eins og maður hafi verið laminn með lurkum. Svo kemur einhver blindfullur kjúklingur og lætur sér detta í hug að bjóða manni GÓÐA kvöldið, eins og það sé eitthvað gott við það þegar maður er að drepast af brjósklosi. En eins og alltaf þá kemur maður heim, fúll og fúlastur út í sjálfan sig fyrir að halda ekki út vaktina og sest svo við tölvuna. Eins og stóllinn minn fyrir framan hana sé eitthvað skárri en bílsætið, "Déskollans ræfildómur í manni alla tíð" hugsaði ég á meðan tölvan var að keyra sig upp og komst að þeirri niðurstöðu þar væru þó eignir farþegar að bjóða manni GÓÐA kvöldið. En um leið og ég opnaði tölvuna dettur ekki fullur félagi minn inn í spjallið og hvað var það fyrsta sem hann segir, jú nema hvað:  "GÓÐA KVÖLDIÐ". Af hverju í skollanum getur fólk ekki fundið upp á að heilsa á einhvern annan hátt en með Góða kvöldið þó ekki væri nema af tillitsemi við þá sem eiga ekki gott kvöld. Við sem eru alltaf að tala um að málið sé svo ríkt að orðum. Svo dettur ekki nokkrum lifandi manni í hug að heilsa á annan hátt en með Góða kvöldið. Tillögur óskast hér með að nýrri og fjölbreyttari orðum sem nota má í þessu tilfelli. Ég ætla að reyna að leggja mig og athuga hvort ég vakna ekki upp í betra ástandi, ástandi sem þolir GÓÐA kvöldið fram undir morgun.


Þjónusta út í horni og sími fyrir 7 ára

Skrapp í Smáralindina í dag með mömmu og eldri dóttur minni, sú yngri var hálflasin heima. (reyndar dvaldi ég þar lengur en ég ætlað), Móðir mín sem er með göngugrind og öndunarkút varð að fá hjólastól þar sem hún mæðist fljótt. Eins og vera ber lagði ég bílnum fyrir framan Hagkaupsmegin enda hef ég alltaf talið það aðalinngang þessarar verslunarmiðstöðvar. Þjónustuborðið sem ég hélt vera fyrir innan andyrðir (og var það víst einhvertímana, Guð er svona langt síðan ég hef verslað þarna),  hafði þá verði flutt upp á efrihæðina og alveg í hinn endann á húsinu þetta gerði það að verkum að ég varð að ganga fjórum sinnum oftar eftir þessu tippalaga húsi en ég annars hefði þurft. Hver í andskotanum lét sér detta í hug að færa þjónustuborðið inn í horn á efri hæð.  En þetta er yfirleitt sá staður sem þú endar á í þessu húsi. Já það er kannski ágætis endir á heimsókn í Smáralindina að koma við á þjónustuborðinu og fá smá aðstoð. Hélt að gamla staðsetningin hefði nú hentað fólki betur. Og ekki batnaði déskollans brjósklosið við þetta aukaklabb um grjóthörð gólf Mammonshallar kaupmannanna.

simi1Ég er aftur á móti í svolitlu sjokki yfir því að mamma mín keypti GSM síma handa 7 ára dóttur minni í afmælisgjöf. Reyndar einskonar barnaútgáfu af slíku tóli þar sem hún getur aðeins hringt í fimm fyrirfram valin númer. En kannski er það ágætt þar sem hún er farin að fara ein til og frá skóla og er farin að gera það að reglu að koma við hjá Ömmu sinni eftir skóla sem býr rétt við skólann. Kannski er þetta ágætis öryggistæki þó maður sé bara 7. ára, Þessi borg er víst ekki með öllu hættulaus lengur. Veit það ekki!!. Hef nú aldrei verið hlynur því að rétta krökkum svona hlutina upp í hendurnar. En tíminn tilfar og það er víst ekkert pláss fyrir miðaldaskoðanir í uppeldisfræðum lengur. Við erum víst öll orðin ofurseld markaðalögmálunum (verst að kaupmenn og markaðshygguguðir vita það líka). Maður er vís nauðbeygðu til að taka þátt í bullinu sem kallaður er nútíminn. Vera með, eins og hinir. Annars ertu bara út í horni - Fýludallur og Guð má vita hvað. Fyrst barnið fær síma sjö ára þá hlýtur hún að fá Debetkot 9. ára tölvu 10 ára og ætli ég verði bara ekki að slá lán og kaupa hana henni nýja bíl í fermingargjöf.

- NEI Aldrei , held áfram að forpokaður afturhaldseggur sem ber ekkert skynbragð á kröfur nútímans æskunni til handa, þar sem tæki og tól eru talin undirstaða hamingjunnar. Ætla frekar að horfa á mín eldgömlu og úrsér gengnu gildi og reyni frekar að gefa henni tíma minn og athygli, skylning og traust til að velja sér farsæla leið í lífinu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband