9.4.2008 | 21:06
Óþekku börnin hans Jóns Ásgeirs
Baugur selur fjölmiðla og fjármálafyrirtæki. Ég get ekki annað en gantast með þetta. Selur hvað, Var Baugur að selja eitthvað. Eins og ég skil þessa frétt stofnaði Baugur tvö eignarhaldsfyrirtæki í viðbót og henti óþekkum rekstareiningum þar inn. Svo getur Baugur farið út til útlanda og sýnt fram á flottari pappíra og fengið betri lánakjör fyrir því sem hann ætlar sér.
Ég er að hugsa um að gera þetta líka. Kaupa íbúðirnar sitthvoru megin við mig og þegar ég fæ svo fína gesti í heimsókn þar sem ég þarf að sanna fullkomleika fjölskyldulífsins get ég skutlað óþægu börnunum mínum sem mér hefur ekki tekist að ala betur upp en raun ber vitni í sitthvora íbúðina og segi svo gestunum að þetta séu börn nágrannans.
En það er aðeins einn munum á mér og Baugi Group. Ég á engin óþekk börn, og heldur engan pening til að kaupa íbúðirnar, en ég er heldur ekki Baugur Group.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.4.2008 | 09:04
Brjósklos næstu 10 daga
Við karlmenn eru upp til hópa óttalegar hænur. Allavega þegar að veikindum kemur. Um leið og eitthvað bjátar á þá verðum við svo veikir að það hefur enginn, hvorki í þessari veröld né nokkurri annarri orðið svo veikur sem við. Ég er einmitt að upplifa það þessa dagana að vera með eitt það rosalegasta brjósklos sem nokkur maður hefur fengið. Þessi sársauki gengur upp og niður eftir hægri fæti og maður hefur það sterklega á tilfinningunni að hægri mjöðmin sé ónýt.
Eftir þriggja daga verki, og fína samúð konunnar sem þó fór minnkandi þar sem ég gerði ekkert í málinu greip ég símann og hringdi í heimilislæknirinn, svona mest til að endurvekja samúð og þjónustulund konunnar aftur og fékk tíma hjá lækninum sama dag. Hann sendi mig strax í sneiðmyndatöku og næsta dag lá úrskurður fyrir - BRJÓSKLOS. Veikindi mín mögnuðust um allan helming við að fá á sig þetta ægilega nafn á verkina mína. "Ég þarf næst að finna fyrir þig sérfræðing" sagði læknirinn og næsta dag á eftir hringdi svo læknirinn í mig "Já þú færð tíma hjá doktor XXX sem er ungur sérfræðingur sem er nýkominn heim frá námi erlendis eftir 10 daga". "Ha 10 daga" En ég sem hef fengið allt annað hvort samdægurs eða næsta dag á nú að fara að bíða með þessi rosalegustu veikindi og verstu verki sem nokkur íslendingur hefur fengið í heila 10 daga. Nei herra Jón! svona gengur það ekki. 10. daga með þessa verki er ekki það sem ég ætla að þola.
Ég er strax lagður af stað að finna einhvern gamlan sérfræðing sem hefur verið nógu lengi í bransanum til að fatta að ég er veikari en allir hinir og er tilbúinn að bregðast við því strax á morgun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2008 | 01:44
Bara ef það hentar mér
Íslendingar eru skrýtið fólk. Það er eins og við getum bara haft eitt vandamáli í umræðunni í einu. Til að slá aðeins á umræðuna um gengi krónunnar og niðurdýfu í efnahagslífinu komu vörubílstjórar okkur til bjargar. Eftir látlausar umræður um efnahagslífið talar fólk um fátt meira en aðgerðir vörubílstjóra, síðustu daga.
Ég ætla að taka það strax fram að ég er mikið meira en hlynntur aðgerðum þeirra. Enda starfa ég sjálfur sem leigubílstjóri svo hækkanir olíu og bensínverðs hefur ekkert farið fram hjá buddunn minni.
En Vörubílstjórar eru ekki bara að mótmæla bensínverði. Þeir eru nefnilega líka að mótmæla og ekki síður að manni skilst hvíldarákvæðum sem þeir búa við. Einnig háum sektargreiðslum fyrir að virða ekki ákvæði hvíldartímanna. Með öðrum orðum þeir eru að mótmæla sektum fyrir lögbrot. Lögbrot í umferðinni sem við fyrir nokkrum misserum sáum hækka og sögðum þá ekki orð því þá var sjónum okkar bara beint að ofsaakstri. En þeir hækkuðu ekki bara þær sektir heldur allar sektir fyrir öll umferðarlagabrot og niðurfelling ríkisins á VSK á sínum tíma var smáaur miðað við aukningu þeirra þúsunda sem þeir nú innheimta vikulega í sektir af landsmönnum í umferðinni. En aftur að okkur íslendingum og samstöðunni við vörubílstjórana. Bubbi Morthens kom með snildar yfirlit á því á tónleikum um daginn þó ég muni það ekki orðrétt var það eitthvað á þessa leið:
"Dagur 1. Yes - Loksins gerði einhver eitthvað Bravó fyrir vörubílstjórum - Mínir menn
Dagur 2. Já bara nokkuð gott hjá þessum trukkaköllum. Fínt mál að láta vita af sér. Auðvitað eiga þeir að halda áfram og mótmæla Bensínið á jeppann minn er orðið svo deskolli dýrt.
Dagur 3. Hey hver djöfullinn er þetta - er allt stopp hérna ég er að flýta mér. Þessi andkotan vörubílstjórar, geta þeir ekki mótmælt einhverstaðar annarstaðar. Ég er alltof seinn í vinnuna."
Já ég vona sannarlega að bílstjórarnir haldi áfram og sýni og sanni fyrir okkur sem bölvum því að sitja föst í umferðinni vegna mótmælanna að upp hafa runnið nýir tímar á Íslandi þar sem menn taka ekki öllu bara með hangandi haus.
Bloggar | Breytt 15.4.2008 kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2008 | 22:23
Til umhugsunar fyrir sögumennina
Hve oft höfum við ekki lifað að einhver ætlar að segja okkur sögu af náunganum og sver og sárt við leggur að sagan sé sönn. 1000 sinnum hef ég keypt slíka sögu og borið hana í næsta mann og fengið það síðar í hausinn að sagan var tómt kjaftæði. Ég hef því ákveðið að ég vil ekki fá sögur um náungan sem eru alveg sannar. Ég byrjaði á þessari skoðun minni í morgun þegar félagi minn kom og sagði
- Bárður ég verð að segja þér sögu maður, Þetta er eftir áræðanlegum heimildum, þú veist hann hérna..
Ég greyp frammí fyrir honum og sagði.
-Nei, nei alls ekki segja mér sögu ef hún er alveg sönn.
- Ha? spyr þá vinur minn, hvað meinar'u.
- Jú sjáðu til ef þú segir mér sögu sem er alveg sönn þarf ég að vanda mig svo rosalega ef ég ætla að hafa hana rétt eftir þegar ég fer að segja næsta manni hana. Þetta er einmitt ástæða þess að ég er nú orðið mikið hrifnari af lygasögum og ósannindum en því sem satt er um fólk. Því ef sagan er á annað borð lygi þá skiptir engu þó hún breytist frá manni til manns, Ég get þá kryddað hana að vild, stílbreytt og staðbætt. Sannar sögur verður hinsvegar að segja alveg eins eigi þær að halda sannleiksgildi sínu. Slepptu þess vegna að segja mér sanna sögu af þessum manni. Því þá þarf ég að muna utanbókar svo mikið og ljúgðu heldur bara einhverju upp á hann. Þá get ég haldið áfram að segja söguna án þess að vera að vanda mig eitthvað sérstaklega við það.
- já, já jaaa ég ætlaði að segja þér. Andskotinn það er ekki einu sinni hægt að segja þér góða kjaftasögu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.4.2008 | 15:39
Geir að finna sér farveg
Í fréttum er það helst að Geir H. Haarde forsætisráðherra segist ekki vilja semja við menn sem fara fram með ofbeldi og lögbrotum. Stóð eitthvað til að semja við þá áður en mótmælin hófust? Stóð það nokkru sinni til að semja við einhvern í þessu sambandi yfirleitt? Geir fer nefnilega fyrir ríkisstjórn sem hefur bara ekki verið að gera neitt til að stöðva niðursveifluþróunina sem hefur verið að eiga sér stað.
Og þó jú, núna. Ætlar hann að hlaupa til og aðstoða bankana. Þá sömu og eru að setja almenna íbúðarkaupendur á hausinn vegna gengi krónunnar. Bankana sem hvöttu væntanlega íbúðarkaupendur til að taka myntkörfulán hjá sér fyrir ekki löngu síðan. (Guðsi sé lof fyrir að ég féll ekki fyrir slíku enda þá löngu búinn að kaupa mína íbúð.
Bankinn minn hringdi þó 20 sinnum í mig til að bjóða mér betri kjör. Þegar ég loks gafst upp, eyddi heilum degi í að afla gagna fyrir bankann minn svo hann gæti boðið mér betri kjör kom á daginn að mánaðarlegar afborganir mínar myndu hækka en ekki lækka, ef ég flytti íbúðarlánið mitt til bankans. Enda ætlaði bankinn minn að taka inn í endurfjármögnunina sína 2 afborganir sem eftir voru af gömlu Corollunni minni og breyta því í 25 ára lán. Ég átti líka 3 afborganir eftir af skuldarbréfi sem ég hafði tekið vegna íbúðarkaupanna minna og bankinn ætlaði líka að skuldbreyta því í 25 ára lán. Og þetta kallað bankinn minn - BETRI KJÖR. Hann var örugglega bara að hugsa um min VÁ, góður banki.
Ekkert varð af þessum viðskiptum mínum og bankans og í lokin varð ég svo fúll að ég skipti um banka. Efast samt um að sá banki sé nokkuð betri. Held að bankar séu svona eins og stjórnmálaflokkarnir. Lofi öllu fögru fyrir kosningar. Þegar þú hefur svo kosið bankann sem bankann þinn þá standa loforði ekki frekar en hjá stjórnmálaflokkunum.
En nú er ég kominn langt frá fyrirsögn þessarar greinar og þó ekki. Geir vill sem sagt hlaupa undir bagga með bönkunum og lána þeim aftur peninginn sem við fengum fyrir að selja þá svo eigendurnir geti flogið í einkaþotu (líkt) og Geir gerir þessa dagana. Bankastjórar og eigendur bankana geta svo setið saman í útlandinu og hlegið að því að nú fái þeir kaupverð bankana endurgreitt í lánaformi frá ríkinu - Þið hljótið að vera að grínast með þetta í Ríkisstjórninni - Ykkur getur ekki verið alvara. Svo kallið þið vörubílstjóra lögbrjóta - heiðarlega menn sem eru að reyna að berjast fyrir kröfunni um að geta lifað mannsæmandi lífi að vinnu sinn. Tími til komin að einhverjir í þessari ríkisstjórn fari að rífa af sér silkibindið, bretta upp ermar og aka vörubíl.
Bloggar | Breytt 9.4.2008 kl. 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2008 | 14:26
Nýtt blog
Jæja hér er ég kominn til að vera. hér mun ég reyna að tjá mig um það sem mér finnst um hitt og þetta. Mín skoðun á því þarf ekkert að vera þín og ég er ekkert sérstaklega forvitin um þína skoðun. En ef þú vilt tjá þig um þær nú eða mínar þá er þér það alveg velkomið. Í því felst málfrelsið sem við lifum við.
Fyrir mörgum árum kynntist ég manni sem án undantekninga hóf setningar á "Mér finnst" eða "Ég held". Þegar maður greip svo frammí fyrir honum í miðri orðræðunni og ætlaði að fara að mótmæla því sem hann var að segja eða að leiðrétta hann, þá benti hann manni iðulega á að hann væri aðeins að segja hvað sér finnist eða hann héldi. Það þyrfti hinsvegar ekkert endilega að vera hinn heilagi sannleikur. Og ef hinn eini heilagi sannleikur væri til þyrftum við líklega ekkert að ræða málin frekar.
Ég lærði talsvert mikið í orðræðunni af þessum manni sem ég hugsa enn iðulega hlýlega, en það skal tekið fram að þessi einstaki vinur minn lést fyrir nokkrum árum. Ég ætla einmitt að hafa þessa reglu hans að leiðarljósi í blogginu mín að segja það sem mér finnst eða ég held. Burt séð frá hvaða skoðanir ég held að henti fjöldanum. Þegar ég hugsa um þennan horfna vin minn minnist ég þess ekki að hafa heyrt hann nokkru sinni hallmæla nokkrum manni - Það versta sem ég man hann segja um annan var - Já hann á svona bágt. Ég hinsvegar ekki jafn viss um að mér takist að halda þeirri reglu hans á lofti. Enda á ég það til að vera orðhvatur mjög og stundum sökum þess misskilinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)