Þjónusta út í horni og sími fyrir 7 ára

Skrapp í Smáralindina í dag með mömmu og eldri dóttur minni, sú yngri var hálflasin heima. (reyndar dvaldi ég þar lengur en ég ætlað), Móðir mín sem er með göngugrind og öndunarkút varð að fá hjólastól þar sem hún mæðist fljótt. Eins og vera ber lagði ég bílnum fyrir framan Hagkaupsmegin enda hef ég alltaf talið það aðalinngang þessarar verslunarmiðstöðvar. Þjónustuborðið sem ég hélt vera fyrir innan andyrðir (og var það víst einhvertímana, Guð er svona langt síðan ég hef verslað þarna),  hafði þá verði flutt upp á efrihæðina og alveg í hinn endann á húsinu þetta gerði það að verkum að ég varð að ganga fjórum sinnum oftar eftir þessu tippalaga húsi en ég annars hefði þurft. Hver í andskotanum lét sér detta í hug að færa þjónustuborðið inn í horn á efri hæð.  En þetta er yfirleitt sá staður sem þú endar á í þessu húsi. Já það er kannski ágætis endir á heimsókn í Smáralindina að koma við á þjónustuborðinu og fá smá aðstoð. Hélt að gamla staðsetningin hefði nú hentað fólki betur. Og ekki batnaði déskollans brjósklosið við þetta aukaklabb um grjóthörð gólf Mammonshallar kaupmannanna.

simi1Ég er aftur á móti í svolitlu sjokki yfir því að mamma mín keypti GSM síma handa 7 ára dóttur minni í afmælisgjöf. Reyndar einskonar barnaútgáfu af slíku tóli þar sem hún getur aðeins hringt í fimm fyrirfram valin númer. En kannski er það ágætt þar sem hún er farin að fara ein til og frá skóla og er farin að gera það að reglu að koma við hjá Ömmu sinni eftir skóla sem býr rétt við skólann. Kannski er þetta ágætis öryggistæki þó maður sé bara 7. ára, Þessi borg er víst ekki með öllu hættulaus lengur. Veit það ekki!!. Hef nú aldrei verið hlynur því að rétta krökkum svona hlutina upp í hendurnar. En tíminn tilfar og það er víst ekkert pláss fyrir miðaldaskoðanir í uppeldisfræðum lengur. Við erum víst öll orðin ofurseld markaðalögmálunum (verst að kaupmenn og markaðshygguguðir vita það líka). Maður er vís nauðbeygðu til að taka þátt í bullinu sem kallaður er nútíminn. Vera með, eins og hinir. Annars ertu bara út í horni - Fýludallur og Guð má vita hvað. Fyrst barnið fær síma sjö ára þá hlýtur hún að fá Debetkot 9. ára tölvu 10 ára og ætli ég verði bara ekki að slá lán og kaupa hana henni nýja bíl í fermingargjöf.

- NEI Aldrei , held áfram að forpokaður afturhaldseggur sem ber ekkert skynbragð á kröfur nútímans æskunni til handa, þar sem tæki og tól eru talin undirstaða hamingjunnar. Ætla frekar að horfa á mín eldgömlu og úrsér gengnu gildi og reyni frekar að gefa henni tíma minn og athygli, skylning og traust til að velja sér farsæla leið í lífinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Djöfull er ég orðinn syfjaður á að bíða eftir þessu bloggi...

Hlynur Jón Michelsen, 11.4.2008 kl. 03:44

2 Smámynd: Bárður Örn Bárðarson

Þá er bara að leggja sig. Kannski verður það komið þegar þú vaknar

Bárður Örn Bárðarson, 12.4.2008 kl. 02:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband