Óþekku börnin hans Jóns Ásgeirs

Baugur selur fjölmiðla og fjármálafyrirtæki. Ég get ekki annað en gantast með þetta. Selur hvað, Var Baugur að selja eitthvað. Eins og ég skil þessa frétt stofnaði Baugur tvö eignarhaldsfyrirtæki í viðbót og henti óþekkum rekstareiningum þar inn. Svo getur Baugur farið út til útlanda og sýnt fram á flottari pappíra og fengið betri lánakjör fyrir því sem hann ætlar sér.

Ég er að hugsa um að gera þetta líka. Kaupa íbúðirnar sitthvoru megin við mig og þegar ég fæ svo fína gesti í heimsókn þar sem ég þarf að sanna fullkomleika fjölskyldulífsins get ég skutlað óþægu börnunum mínum sem mér hefur ekki tekist að ala betur upp en raun ber vitni í sitthvora íbúðina og segi svo gestunum að þetta séu börn nágrannans.

En það er aðeins einn munum á mér og Baugi Group. Ég á engin óþekk börn, og heldur engan pening til að kaupa íbúðirnar, en ég er heldur ekki Baugur Group.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Iss prinsessurnar þínar eru áreiðanlega aldrei neitt óþekkar. Takk fyrir bloggvináttu, ég sá að þú ert búinn að fá niðurstöðu í haltrið...kallanginn.

Ragnheiður , 9.4.2008 kl. 22:31

2 Smámynd: Bárður Örn Bárðarson

Veit ekki hvað Guð var að hugsa þegar hann gaf mér þessi börn. En líklega hefur hann verið að verðlauna konuna frekar en mig. Því þær eru einstaklega vel heppnaðar hvað óþekkt svertir. Já ég get svo svarið það að þegar einhver hefur sagt mér í gegnum tíðina að brjósklos sé vont þá kinkar maður kolli og segir aha. En frá og með þessum degi þá eiga þeir sem fá þetta samúð mína alla - ég mun sýna þeim mína innilegustu hluttekningu og athygli meðan þeir lýsa hve vont þetta sé.

Bárður Örn Bárðarson, 10.4.2008 kl. 12:25

3 Smámynd: Ragnheiður

Ég er búin að taka þig af másparkaílistanum, ertu ekki feginn ? Sko málið er að maður má bíða endalaust eftir læknum. Ef ég ætla að tala við gigtarlækni þá er biðin 2 mánuðir, gigtarkastið löngu liðið hjá.

Asnó kerfi

Ragnheiður , 10.4.2008 kl. 13:15

4 Smámynd: Bárður Örn Bárðarson

Jú það er ekkert sérlega gott að vera á másparkaílistanum. Það getur haft alskonar kvilla í för með sér.  Já það er með þessa lækna að er engu líkar en maður verði hreinlega að ræna þeim og loka þá inni heima hjá sér í svona tilfellum og bíða svo eftir að hlutirnir gerist.

Bárður Örn Bárðarson, 11.4.2008 kl. 03:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband