8.4.2008 | 22:23
Til umhugsunar fyrir sögumennina
Hve oft höfum við ekki lifað að einhver ætlar að segja okkur sögu af náunganum og sver og sárt við leggur að sagan sé sönn. 1000 sinnum hef ég keypt slíka sögu og borið hana í næsta mann og fengið það síðar í hausinn að sagan var tómt kjaftæði. Ég hef því ákveðið að ég vil ekki fá sögur um náungan sem eru alveg sannar. Ég byrjaði á þessari skoðun minni í morgun þegar félagi minn kom og sagði
- Bárður ég verð að segja þér sögu maður, Þetta er eftir áræðanlegum heimildum, þú veist hann hérna..
Ég greyp frammí fyrir honum og sagði.
-Nei, nei alls ekki segja mér sögu ef hún er alveg sönn.
- Ha? spyr þá vinur minn, hvað meinar'u.
- Jú sjáðu til ef þú segir mér sögu sem er alveg sönn þarf ég að vanda mig svo rosalega ef ég ætla að hafa hana rétt eftir þegar ég fer að segja næsta manni hana. Þetta er einmitt ástæða þess að ég er nú orðið mikið hrifnari af lygasögum og ósannindum en því sem satt er um fólk. Því ef sagan er á annað borð lygi þá skiptir engu þó hún breytist frá manni til manns, Ég get þá kryddað hana að vild, stílbreytt og staðbætt. Sannar sögur verður hinsvegar að segja alveg eins eigi þær að halda sannleiksgildi sínu. Slepptu þess vegna að segja mér sanna sögu af þessum manni. Því þá þarf ég að muna utanbókar svo mikið og ljúgðu heldur bara einhverju upp á hann. Þá get ég haldið áfram að segja söguna án þess að vera að vanda mig eitthvað sérstaklega við það.
- já, já jaaa ég ætlaði að segja þér. Andskotinn það er ekki einu sinni hægt að segja þér góða kjaftasögu.
Athugasemdir
Blessaður höfð-Ingi! Það verður gaman að fylgjast með blogginu þínu.
Jens Guð, 9.4.2008 kl. 00:04
Já déskolli að detta í þennan pakka. Sit hér og les pistla út um allt.
Gaman að skoðanakönnunin hjá þér er sú sama og ég henti inn á bubbi.is en önnur niðurstaða
Bárður Örn Bárðarson, 9.4.2008 kl. 01:54
Jæja kúturinn minn.
Þú ert ekki lost lengur.
Velkominn til baka.
Hlynur Jón Michelsen, 9.4.2008 kl. 02:41
Þakk það Hlynur. Vonandi að maður haldi út árið.
Bárður Örn Bárðarson, 9.4.2008 kl. 08:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.