Geir að finna sér farveg

Í fréttum er það helst að Geir H. Haarde forsætis­ráðherra segist ekki vilja semja við menn sem fara fram með ofbeldi og lögbrotum. Stóð eitthvað til að semja við þá áður en mótmælin hófust? Stóð það nokkru sinni til að semja við einhvern í þessu sambandi yfirleitt? Geir fer nefnilega fyrir ríkisstjórn sem hefur bara ekki verið að gera neitt til að stöðva niðursveifluþróunina sem hefur verið að eiga sér stað. 

Og þó jú, núna. Ætlar hann að hlaupa til og aðstoða bankana. Þá sömu og eru að setja almenna íbúðarkaupendur á hausinn vegna gengi krónunnar. Bankana sem hvöttu væntanlega íbúðarkaupendur til að taka myntkörfulán hjá sér fyrir ekki löngu síðan. (Guðsi sé lof fyrir að ég féll ekki fyrir slíku enda þá löngu búinn að kaupa mína íbúð.

Bankinn minn hringdi þó 20 sinnum í mig til að bjóða mér betri kjör. Þegar ég loks gafst upp, eyddi heilum degi í að afla gagna fyrir bankann minn svo hann gæti boðið mér betri kjör kom á daginn að mánaðarlegar afborganir mínar myndu hækka en ekki lækka, ef ég flytti íbúðarlánið mitt til bankans. Enda ætlaði bankinn minn að taka inn í endurfjármögnunina sína 2 afborganir sem eftir voru af gömlu Corollunni minni og breyta því í 25 ára lán. Ég átti líka 3 afborganir eftir af skuldarbréfi sem ég hafði tekið vegna íbúðarkaupanna minna og bankinn ætlaði líka að skuldbreyta því í 25 ára lán. Og þetta kallað bankinn minn - BETRI KJÖR. Hann var örugglega bara að hugsa um min VÁ, góður banki.

Ekkert varð af þessum viðskiptum mínum og bankans og í lokin varð ég svo fúll að ég skipti um banka. Efast samt um að sá banki sé nokkuð betri. Held að bankar séu svona eins og stjórnmálaflokkarnir. Lofi öllu fögru fyrir kosningar. Þegar þú hefur svo kosið bankann sem bankann þinn þá standa loforði ekki frekar en hjá stjórnmálaflokkunum.

En nú er ég kominn langt frá fyrirsögn þessarar greinar og þó ekki. Geir vill sem sagt hlaupa undir bagga með bönkunum og lána þeim aftur peninginn sem við fengum fyrir að selja þá svo eigendurnir geti flogið í einkaþotu (líkt) og Geir gerir þessa dagana. Bankastjórar og eigendur bankana geta svo setið saman í útlandinu og hlegið að því að nú fái þeir kaupverð bankana endurgreitt í lánaformi frá ríkinu  - Þið hljótið að vera að grínast með þetta í Ríkisstjórninni - Ykkur getur ekki verið alvara. Svo kallið þið vörubílstjóra lögbrjóta - heiðarlega menn sem eru að reyna að berjast fyrir kröfunni um að geta lifað mannsæmandi lífi að vinnu sinn. Tími til komin að einhverjir í þessari ríkisstjórn fari að rífa af sér silkibindið, bretta upp ermar og aka vörubíl.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband