Nýtt blog

Jæja hér er ég kominn til að vera. hér mun ég reyna að tjá mig um það sem mér finnst um hitt og þetta. Mín skoðun á því þarf ekkert að vera þín og ég er ekkert sérstaklega forvitin um þína skoðun. En ef þú vilt tjá þig um þær nú eða mínar þá er þér það alveg velkomið. Í því felst málfrelsið sem við lifum við.

Fyrir mörgum árum kynntist ég manni sem án undantekninga hóf setningar á "Mér finnst" eða "Ég held". Þegar maður greip svo frammí fyrir honum í miðri orðræðunni og ætlaði að fara að mótmæla því sem hann var að segja eða að leiðrétta hann, þá benti hann manni iðulega á að hann væri aðeins að segja hvað sér finnist eða hann héldi. Það þyrfti hinsvegar ekkert endilega að vera hinn heilagi sannleikur. Og ef hinn eini heilagi sannleikur væri til þyrftum við líklega ekkert að ræða málin frekar.
Ég lærði talsvert mikið í orðræðunni af þessum manni sem ég hugsa enn iðulega hlýlega, en það skal tekið fram að þessi einstaki vinur minn lést fyrir nokkrum árum. Ég ætla einmitt að hafa þessa reglu hans að leiðarljósi í blogginu mín að segja það sem mér finnst eða ég held. Burt séð frá hvaða skoðanir ég held að henti fjöldanum.  Þegar ég hugsa um þennan horfna vin minn minnist ég þess ekki að hafa heyrt hann nokkru sinni hallmæla nokkrum manni - Það versta sem ég man hann segja um annan var - Já hann á svona bágt. Ég hinsvegar ekki jafn viss um að mér takist að halda þeirri reglu hans á lofti. Enda á ég það til að vera orðhvatur mjög og stundum sökum þess misskilinn.


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband